Næsta Unglingalandsmót UMFÍ, verður haldið á Sauðárkróki um
verslunarmannahelgina 2026.
Mótið hefst fimmtudaginn 30. júlí og lýkur sunnudaginn 2. ágúst.
Unglingalandsmót hafa verið haldin á Sauðárkróki árin 2004, 2009, 2014 og 2023 með hjálp margrar handa.
Þegar Unglingalandsmót UMFÍ var haldið hér á Sauðárkróki árið 2023, var greitt 2.500 kr. fyrir hverja vinnustund sjálfboðaliðans til félags/deildar að þeirra vali.
Skráðir tímar voru um 3.000. og greitt var til aðildarfélaga og deilda tæp 7.5 milljón.
Við treystum því á okkar frábæru sjálfboðaliða til að sinna hinum ýmsum verkefnum á Unglingalandsmóti UMFÍ nk. verslunarmannahelgi og eru verkefni við allra hæfi. Með hverri klst. styrkir þú þitt sambandi, félagi eða deild.
Til dæmis gætir þú verið sjálfboðaliði hjá Golfklúbb Skagafjarðar á fimmtudegi og laugardegi þó að golfið verði einungis spilað á fimmtudeginum, en við myndum setja þig t.d. á laugardeginum í aðstoð í skráningartjald keppenda á Sauðárkróksvelli þar sem frjálsíþróttamótið fer fram, en tími þinn þar rennur samt til Golfklúbbsins.
Endilega fylltu út formið og við finnum út í sameiningu hvar kraftar þínir nýtast best.
Unglingalandsmót UMFÍ 2026
Ef eitthvað er óljóst þá er velkomið að hafa samband við UMSS umss@umss.is eða í síma 453 5460
