Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs, hefst mánudaginn 9. febrúar næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 & 863-1399 eða á vidar@isi.is
Dæmi um svör frá nemendum varðandi helstu kosti námsins:
„Hversu djúpt er farið í námsefnið og að það sé alþjóðlega tengt, í takt við það sem er verið að gera út í heimi“
„Mér líður allan tímann þannig að ég sé að læra með tilgangi“
„Gott aðgengi að kennara þrátt fyrir fjarnám“
„Mjög gagnlegt nám og mikilvægt að þjálfarar og þeir sem hafa áhuga á þjálfarastarfinu geti sótt það á svona einfaldan máta“
„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn“
„Skýr uppbygging, fjölbreytt efni og góð tenging við raunverulegar aðstæður í þjálfun barna og unglinga"
