106. Ársþing UMSS verður haldið 20. apríl nk. kl. 17:00 í Húsi frítímans sem er við Sæmundargötu 7 Sauðárkróki.
Formenn aðildarfélaga eru sjálfkjörnir sem fulltrúar á ársþing og varamenn í forföllum þeirra.
Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags ákvarðast að öðru leiti af fjölda félagsmanna aðildarfélaganna. Tala félagsmanna skal miðuð við tölu gjaldskyldra félaga (18 ára og eldri) við síðustu áramót.
- 2 fulltrúar auk formanns fyrir 0-100 félagsmenn.
- 3 fulltrúar auk formanns fyrir 101-150 félagsmenn.
- 4 fulltrúar auk formanns fyrir 151-200 félagsmenn.
Síðan bætist við einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 100 félagsmenn að 1000 félögum, en einn fulltrúa á hverja byrjaða 200 félaga þar fyrir ofan.
Atkvæðisrétt á þingum sambandsins hafa einungis kjörnir fulltrúar aðildarfélaganna og stjórn UMSS. Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt hvar sem er á fundum ungmennafélaganna. Auk þess eiga seturétt á þinginu með málfrelsi og tillögurétt, fulltrúar í sérráðum UMSS, aðrir sem kjörnir eru í trúnaðarstöður hjá sambandinu og þeir aðrir sem stjórn UMSS býður til þings.
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um fundarboð, dagskrá og þingtillögur
Fyrra fundarboð
Seinna fundarboð
Dagskrá þingsins
Þingtillögur
Árskýrsla og ársreikningar 2025 (verða birtar í síðasta lagi 17. apríl nk.)
|
Fjöldi þingfulltrúa boðaðir á 106. Ársþingi UMSS 2026
|
|
Aðildarfélag
|
|
Félagar 18+
|
Þingfulltrúar + formaður
|
|
|
Bílaklúbbur Skagafjarðar
|
100
|
2+1
|
|
|
Golfklúbbur Skagafjarðar
|
229
|
5+1
|
|
|
Hestamannafélagið Skagfirðingur
|
495
|
7+1
|
|
|
Íþróttafélagið Gróska
|
5
|
2+1
|
|
|
Pílukastfélag Skagafjarðar
|
39
|
2+1
|
|
|
Siglingarklúbburinn Drangey
|
101
|
3+1
|
|
|
Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári
|
528
|
8+1
|
|
|
Ungmennafélagið Hjalti
|
229
|
5+1
|
|
|
Ungmennafélagið Neisti
|
354
|
6+1
|
|
|
Ungmennafélagið Tindastóll
|
1520
|
15+1
|
|
|
Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar
|
75
|
2+1
|
|
|
|
Samtals
|
3675
|
56+11
|
= 67 fulltrúar
|